CasoDeus

Símon Bogi Þórarinsson

sbth07@gmail.com

Þetta er ég...

Úrvalseintak. Fæddur níunda júlí 2007. Fæddist á Akureyri en flutti snemma á Vesturlandið í sveitina. Lítið fyrir sveitina en meira fyrir tækni og tölvur. Ég er listamaður og hönnuður.

Ég kem úr fjögurra manna fjölskyldu, á eina eldri systur og bý með foreldrum mínum. Ég tel mig vera duglegan, samviskusaman og eiga auðvelt með að vinna með öðrum. Ég hef mikinn áhuga á tækni og skapandi verkefnum, meðal annars myndbandsklippingu, þrívíddarteikningu, ljósmyndun og myndlist.

Ég mun útskrifast með stúdentspróf frá Menntaskólanum í Borgarnesi vorið 2026 og stefni á að hefja diplómanám við Tækniskólann haustið 2026. Meðfram námi hef ég lagt áherslu á að afla mér starfsreynslu og þróa vinnubrögð sem nýtast vel í framtíðinni.

Ég hef einnig tekið auka áfanga í myndlist, ljósmyndun og grunnteikningu við Menntaskólann á Tröllaskaga til að dýpka skilning minn á formi og uppbyggingu mannslíkamans Hér er hlekkur á verkefna síðuna sem ég gerði í google sites Google sites . Ég teikna mikið í Blender og hef unnið við myndbandsklippingu í Filmora, þar sem ég tel mig vera orðinn nokkuð færan. Ég er með grunnþekkingu í upptökuforritinu Protols. Þá hef ég einnig hannað aukahluti fyrir persónur í Roblox, þar sem ég og félagi minn rekum litla verslun innan leikssins. Og þegar ég spilaði Minecraft var það til að skapa og teikna ég var alltaf í creative mode.

Samhliða námi hef ég starfað hjá Nettó í um fjögur ár, bæði með skóla og í sumarstörfum. Þar hef ég öðlast góða reynslu af þjónustustörfum og daglegum rekstri verslunar. Ég hef sinnt fjölbreyttum verkefnum, svo sem afgreiðslu á kassa, áfyllingum, vinnu í grænmetis- og gosdeild ásamt öðrum almennum verslunarstörfum. Starfið hefur kennt mér skipulag, hraða í vinnubrögðum og mikilvægi góðrar þjónustu.

Í frítíma mínum stunda ég reglulega líkamsrækt og hef mikinn áhuga á tónlist. Ég spila á trompet og saxófón og hef stundað nám við Tónlistarskólann í Borgarnesi. Tónlistarnámið hefur kennt mér aga, þrautseigju og samvinnu.

Email/netfang

Copyright © 2026 Divi. All Rights Reserved.